Vaxtarsamningur Vesturlands
Leturstærð 1
Leturstærð 2
Leturstærð 1
Póstur
Heim
Prenta
Veftré
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3

 

 

 

 

 

 

 


Innri vefur


Vaxtarsamningur
Vesturlands

Bjarnarbraut 8
Senda tölvupóst
Sími: 433-2310
Gsm: 892-3208
vaxtarsamningur
@vaxtarsamningur.is

Vaxtarsamningur Vesturlands er samningur milli iðnaðarráðuneytisins og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Samningurinn er til fjögurra ára og gert er ráð fyrir 25 mill. fjárframlagi á hverju ári, sem er að mestu ráðstafað í styrki til nýsköpunar- og atvinnuþróunarverkefna á Vesturlandi.

 

Almenn markmið samningsins eru að:

 

  1. Efla samstarf fyrirtækja, háskóla og opinberra stofnana um þróun og nýsköpun í þágu atvinnulífsins.

  2. Þróa áfram og efla klasasamstarf vaxtargreina svæðisins og efla svæðisbundna sérþekkingu á vel skilgreindum styrkleikasviðum.

  3. Fjölga samkeppnishæfum fyrirtækjum og störfum og efla framboð á vörum og þjónustu.

  4. Stuðla að útflutningi vöru og þjónustu og gjaldeyrisskapandi starfsemi.

  5. Nýta möguleika sem skapast með aðild að alþjóðlegum verkefnum.

  6. Laða að alþjóðlega fjárfestingu og þekkingu.

 

 

Til viðbótar inniheldur samningurinn sérstök svæðisbundin markmið fyrir Vesturland, sem eru:

 

  1. Nýsköpun og tækniþróun sem drifin er áfram af náttúrlegum aðstæðum, öflugum þekkingarsetrum og háskólastarfi á Vesturlandi. Starfsemi þekkingarsetra verði efld og sérstaklega hugað að tengslum þeirra við atvinnulífið á Vesturlandi.
  2. Efling og leit að möguleikum sem tengjast starfsemi og þjónustu við stóriðjuna á Grundartanga og leggja skal sérstaka áherslu á þekkingarstarfsemi og dreifingu slíkrar starfsemi.
  3. Sjálfbær ferðaþjónusta tengd sagnaarfi Vesturlands. Áhersla lögð á samtvinnun náttúruverndar, ferðaþjónustu og menningarstarfs.
  4. Matvæli og svæðisbundnar auðlindir Vesturlands. M.a. verði stutt við nýjar eldisgreinar á sjó og landi, vöruþróun og markaðssetningu afurða.

 

 

Verkefnisstjórn Vaxtarsamningsins afgreiðir umsóknir um stuðning 4-5 sinnum á ári. Umsóknir skulu sendar til skrifstofu SSV á sérstökum umsóknareyðublöðum sem er að finna hér á síðunni.

 

Verkefnisstjóri Vaxtarsamningsins er Ólafur Sveinsson (s. 8923208; tp: olisv@ssv.is)