Vaxtarsamningur Vesturlands
Leturstærð 1
Leturstærð 2
Leturstærð 1
Póstur
Heim
Prenta
Veftré
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3

 

 

 

 

 

 

 


Innri vefur


Vaxtarsamningur
Vesturlands

Bjarnarbraut 8
Senda tölvupóst
Sími: 4371318
Gsm: 8994801
torfi@vaxtarsamningur.is

 

Viltu gerast áskrifandi?

18. janúar 2010

Rjómabúið Erpsstöðum fyrsti framleiðandinn til að nota upprunamerkið

Rjómabúið Erpsstöðum í Dölum er fyrsti matvælaframleiðandinn til að fá úthlutað upprunamerki Vesturlands. Merkið er ætlað matvælaframleiðendum og veitingahúsum á Vesturlandi. Fyrst um sinn mun Rjómabúið Erpstaðir nota merkið á heimagerðan ís en síðar á fleiri vörur úr heimavinnslu búsins. 

 

 
16. nóvember 2009

Umsóknir um notkun á merki fyrir héraðstengdan mat

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um notkun á merki fyrir héraðstengdan mat. Hægt er að nálgast umsóknareyðublað og reglur merkisins HÉR, eða á hlekk vinstra megin á síðunni.

 

Þegar umsækendur hafa verið samþykktir fá þeir sendan kynningarpakka með límmiðum og merkjum til að merkja sínar vörur/matseðla. 

 
22. október 2009

Breytingar á matvælaklasa

Stýrihópur Matvælaklasans hefur nú verið endurnýjaður. Nýr hópur mun hafa það meginverkefni að taka við umsóknum um notkun á upprunamerki Vesturlands. Markmiðið með  breytingunni er að hægt sé að afgreiða umsóknir hratt og vel án mikils umsýslukostnaðar.

 

Í hópnum sitja nú Kristmar Ólafsson, Margrét Björk Björnsdóttir og Torfi Jóhannesson.

 
2. október 2009

Merki fyrir héraðstengdan mat

 Vaxtarsamningurinn hefur, í samráði við stýrihóp matvælaklasans látið hanna merki fyrir héraðstengdan mat (local food) á Vesturlandi. Nú er verið að vinna reglur fyrir notkun merkisins og að því loknu mun matvælaframleiðendum á Vesturlandi gefast kostur á að sækja leyfi fyrir notkun á merkinu.

 

Samhliða þessari vinnu verður matvælaklasinn endurnýjaður og nýjar áherslur lagðar. Markmiðið er að meginverkefni matvælaklasans verði að halda utanum notkun merkisins, kynna þá framleiðslu sem fellur undir það og standa fyrir miðlun upplýsinga meðal þátttakenda.

 
9. janúar 2009

Stefna lögð fyrir matvælaklasann

Á fundi matvælaklasans þann 28. maí var lögð stefna fyrir klasann. Ákveðið var að leggja megin áherslu á að kortleggja matarhefðir á Vesturlandi en einnig var rætt um vöruþróun og vörumerki fyrir héraðstengd matvæli. Sjá fundargerðir hér á síðunni.

 
7. apríl 2008

Stýrihópurinn fundar

Stýrihópur matvælaklasans kom saman í fyrsta sinn í dag. Þar var meðal annars rætt um umfang og möguleika í svæðisbundinni matvælaframleiðslu á Vesturlandi. Einnig var rætt um möguleg verkefni klasans.

 

Fundarmenn voru sammála um að fyrsta skrefið væri að vinna hugmyndavinnu fyrir klasann. Stefnt er á klasafund um miðjan maí.

 
28. mars 2008

Fyrsti fundur Matvælaklasa Vesturlands

Skessuhornið gerði kynningarfundi matvælaklasans góð skil á heimasíðu sinni. Sjá hér

 
10. mars 2008

Veisla á Vesturlandi

Miðvikudaginn 12.mars nk. verður haldinn stofnfundur Matvælaklasa Vesturlands. Fundurinn verður í Landnámssetrinu í Borgarnesi og hefst kl. 13.00.

 

Á fundinn kemur Friðrik V, eigandi samnefnds veitingastaðar á Akureyri og einn forvígismanna "local-food" hreyfingarinnar fyrir norðan. Einnig Guðmundur H. Gunnarsson, starfsmaður Matís á Höfn í Hornafirði og verkefnisstjóri matvælaklasa Austurlands.

 

Þá verða kynningar frá Laufeyju Steingrímsdóttur og Torfa Jóhannessyni.

 

Á fundinum er ætlunin að stofna með formlegum hætti samtök matvælaframleiðenda á Vesturlandi og eru allir sem áhuga hafa hvattir til að mæta.