Klasar - samstarf í samkeppni
Klasi er hópur fyrirtækja og stofnana sem staðsett eru nálægt hvort öðru og njóta góðs af nálægðinni. Klasahugtakið á uppruna sinn í rannsóknum hagfræðinga á velgengi ákveðinna iðnaðarsvæða t.d. í Norður Ítalíu. Í ljós hefur komið að aðgengi að náttúruauðlindum eða nálægð við markað er ekki forsenda velgengni, ef fyrirtæki á ákveðnu svæði ná að þróa náið samstarf sín á milli.
Árangursríkast er svokallað "triple helix" samstarf. Þá koma saman einkafyrirtæki, háskólar og opinberir aðilar ss. atvinnuþróunarfélög. Vandinn við þessa nálgun er að oft getur verið erfitt að skapa svona samstarf frá grunni. Klasasamstarf getur aldrei verið markmið í sjálfu sér, heldur ber að líta á það sem ákveðna leit til að greina og þróa áfram atvinnulíf svæða.
Í verkefninu Rural Expertice in North (REN) hefur verið unnið að greiningarlíkani fyrir nýsköpun í dreifbýli. Höfundur líkansins er Calum Davidson, hjá Highlands and Islands Enterprice. Líkanið er sýnt hér að neðan:
Líkanið bendir á fjóra lykilþætti til að öflug nýsköpun fái þrifist:
-
Þekkingargrunn
-
Stoðkerfi atvinnuþróunar
-
Sterkan grunn nýsköpunarfyrirtækja
-
Stoðkerfi atvinnulífsins ss. fjárfestingarsjóði, lögfræðifyrirtæki osfr.
Á dreifbýlum svæðum er oftar en ekki skortur á einstökum þáttum þessa líkans. Þannig er þekkingargrunnurinn veikur (fáir eða engir háskólar/rannsóknastofnanir), stoðkerfi atvinnuþróunar takmarkað, öflug nýsköpunarfyrirtæki ekki til staðar og stoðþjónusta atvinnulífsins veik.
Af þessum sökum á nýsköpun oft erfitt uppdráttar í dreifbýlum svæðum. Klasasamstarf fyrirtækja getur hins vegar unnið gegn ókostum dreifbýlisins og skapað nauðsynlegt umhverfi fyrir öfluga nýsköpun.